Óforskammaðir sjóræningjar
5.7.2010 | 20:47
Fann hérna stuttan lista yfir persónuleikaeinkenni siðblindingja (sjá að neðan) og fannst það nokkuð áhugavert að öll atriðiðn nema tvö eiga við Ísrael. Það eina sem ekki passar svo best sem ég veit er "Lauslátur og óábyrgur í kynferðismálum" og "Ástarsambönd endast ekki til lengri tíma" en það mætti svosem skipta nokkrum orðum þarna út og þá myndi það passa, en ætla ekki að gera það hér.
Þessi árás var á engann hátt sjálfsvörn, það sem var um borð í þessum skipum var ekki að fara að skaða nokkur þegn Ísraels auk þess að þegar ráðist var á skipalestina var það á alþjóðlegu hafsvæði en ekki Ísraelskri lögsögu. Þannig að þarna var um ræða kolólöglega áraás sem líkja má við sjórán af alvarlegustu gerð. Einhvernveginn vilja vesrænir fjölmiðlar oftast (ekki alltaf) "gleyma" að nefna slík smáatriði.. Eða smáatriði í þeirra augum. Það er mér fullkomnlega óskiljanlegt að þrátt fyrir mikla stundarreiði gagnvart Ísrael eru núna mánuði seinna allir búinir að gleyma því sem þarna átti sér stað. Enn og aftur hafa Ísraelar labbað í burtu með löngutöng á lofti, sjálfumglatt sökum þess að það komst upp með enn eitt brotið á alþjóðalögum og sáttmálum.
Ætla að ljúka færslunni með því að koma aftur að því sem ég minntist á í upphafi, á þessu siðblindingjaprófi skorar Ísraelska ríkið heil 35 af 37 mögulegum stigum.
Persónueinkenni siðblindingja (sækópata / border line):
_ Á auðvelt með að koma vel fyrir og gefa af sér góðan þokka
_ Er sjálfmiðaður og telur sig vera mikilvægan
_ Sækir í hvatningu og örvun. Annars leiðist honum.
_ Beitir blekkingum og lygum eins og ekkert sé eðlilegra
_ Svíkur og svindlar eins og það sé sjálfsagðasti hlutur í heimi
_ Iðrast varla eða einskis og finnur vart til samviskubits þegar gerðir hans bitna á öðrum
_ Sýnir lítil sem engin tilfinningaviðbrögð við óförum annarra
_ Er harðbrjósta og á erfitt með að finna til samúðar
_ Laginn við að notfæra sér annað fólk hvort sem er fjárhagslega eða á annan hátt
_ Hömlulaus á mörgum sviðum
_ Lauslátur og óábyrgur í kynferðismálum
_ Á einhver hegðunarvandamál að baki
_ Hefur ekki þolinmæði né skilning á langtímamarkmiðum. Hlutirnir verða að gerast strax.
_ Hvatvís lífstíll
_ Kennir öðrum um
_ Ástarsambönd endast ekki til lengri tíma
_ Lenti í vandræði á unglingsárum [upphafsár ríkisins]
_ Brýtur boð og bönn og skilorð þegar um slíkt er að ræða
_ Brot hans eru ekki bundin við eitthvað tiltekið svið. Þau spanna ýmis svið.
Við hvert atriði skal merkja tölustaf: 2 (algjörlega) eða 1 (að hluta) eða 0 (alls ekki). Síðan eru stigin talin saman.
0 - 10 stig = Það er allt í fínu með siðferðisvitund þína.
11 - 17 stig = Þú hefur persónuleikagalla en ert ekki siðblind/ur.
18 - 29 stig = Þú ert siðblind/ur og þarft að leita þér hjálpar.
30 - 36 stig = Þú ert fárveik/ur. Bullandi siðblind/ur og hættuleg/ur samfélaginu.
|
Ísraelsmenn biðjast ekki afsökunar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
EN HANN BYRJAÐI!
1.6.2010 | 15:56
Það jaðrar við barnaskap þessar ásakanir Ísraela um að friðarsinnaðir einstaklingar á leið sinni til Gaza með hjálpargögn hafi verið að ráðast á hermenn með eggvopnum og öðrum hættulegum vopnum. Og þó svo að þeir hefði gert það mætti ekki túlka það sem sjálfsvörn þar sem að um vopnaða menn á alþjóðlegu hafsvæði var að ræða? Vopnaða hermenn sem höfðu enga lögsögu á þessu hafsvæði og engan rétt til árásar.
Það að segja að viðbrögð við árás með teygjubyssu eða kylfu gegn vel þjálfuðum sérsveitarmönnum sé að skjóta úr hríðskotabyssum sínum og drepa hann mep hríðskotabyssunni sinni er alveg fáránlegt og sorgleg tilraun til að afsaka óafsakanlega aðgerð. Auk þess að árásir á saklausa borgara með þeim hætti sem Ísraelar gerðu er kolólöglegt, ekki einu sinni á stríðstímum má ráðast á saklausa borgara með vopnavaldi.
Ég vona innilega að alþjóðasamfélagið fari að sjá ljósið sem það virðist vera að gera, en Bandaríkin þurfa sérstaklega að fara að opna augun, ekki sífellt snúa blinda auganu að ódæðisverkum Ísraela. Það þýðir ekki lengur að "harma dauðsföllin" en sleppa því að fordæma árásir sem eru svo augljóslega rangar og ólöglegar. Stóri bróðir þarf að farað taka í lurginn á þeim litla, ekki leifa honum að halda áfram í sama lögbrjótandi farinu sem hefur árum sama níðst á Palestínumönnum.
Frjáls Palestína!
|
Neita ásökunum Ísraela |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Munu ekki vera refsað...
31.5.2010 | 14:32
Það er ekkert sem bendir til þess að Ísraelum muni vera refsað fyrir þessa ólögegur hernaðaraðgerð sína, ekki frekar en þeim hefur verið refsað fyrir það sem þeir hafa gert í fortíðinni. Skemmst frá ber að nefna notkun þeirra á hvítu fosfóri á Gaza ströndinni fyrir ekki svo margt löngu, eða þegar þeir í sömu árás sprengdu upp spítala á Gaza ströndinni. Þetta er eina þjóð heimsins sem fær að að brjóta alþjóðleg hernaðar og mannréttindalög á hverjum degi án nokkurra afleiðinga. Í hverst sinn sem fingri ásakana er bent á Ísrael og eitthvað á að gera í málinu þá kemur stóri bróðir Bandaríkin og stöðvar það með neiturnarvaldinu sínu.
Ég hlakka til að sjá hvað kemur út úr rannsókn á þessu atviki, eflaust munu þeir réttlæta þetta með því að þessi skipalest hafi verið að stofna öryggi Ísraels í hættu. Það er náttúrulega auðséð að hryðjuverkamenn sem fá að borða hafa meiri orku til ódæðisverka. Og börn sem fá lyf og aðrar nauðsynjar komast á braut illvirkja og haturs... Það er akkurat ENGIN afsökun fyrir svona aðgerð. Sá hinn sami sem ætlar að réttlæta það að skipalest sem er að flytja hjálpargögn til þurfandi einstaklinga lendi í árás sem veldur dauða nærri tveggja tuga einstaklinga er eitthvað veikur á geði.
En Guðs útvalda þjóð má víst gera allt...
-Frjáls Palestína!
|
Netanyahu lýsir stuðningi við herinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Smásálir og nöldurpúkar
6.5.2010 | 11:06
Það er ekki íbúðabyggð á Austurstræti, Austurvelli né Tryggvagötu þar sem mesta músíkinn er.. Á Laugarveginum er skemmtistaðir en þeir eru allir á neðri helmingi hans og engin geigvænleg íbúðabyggð er þar. Ég hef verið í húsi sem var í þarnæstu götu fyrir ofan Óliver (á laugarveginum) og ég heyrði varla neitt, örlítinn óm sem hægt var að lækka í með því að halla glugganum.. Þetta gamla lið sem er að kvarta ætti bara að líta til þess tíma sem það var ungt og vildi skemmta sér og bölsótaðist þá eflaust út í röfl gamla fólksins sem ekki vissi hvað hljómflutningstæki var.
Þetta fyrirkomulag er einfaldlega það sem gengur og gerist í borgum, langt því frá að vera einhver einstök og óeðlileg þróun. "Langt út fyrir eðlileg mörk skemmtanalífs", kynslóð þessa talsmanns ætti nú að þekkja byltingu í skemmtanalífi með tilkomu rokksins og hærri og betri hljómburðar sem á sínum tíma gerði eldra fólkið á þeim tíma alveg brjálað. Þar sem að rokkið var "djöflatónlist" í þeirra eyrum, tónlist sem spillti hugum ungra meyja og pilta auk aukningar á neyslu áfengis í kjölfarið.
Hlutirnir þróast og taka breytingum, nýjar kynslóðir þróa með sér nýjar hefðir, tónlistarsmekk og skemmtanalíf. Auknir ofbeldisglæpir er afleiðing þess að það er niðurskurður í lögreglunni og færri löggæslumenn þ.a.l. á ferðinni í miðbænum til að hafa hemil á fólki. Þar er ekki bara áfengisneyslu um að kenna. Það er orðið virkilega langt síðan ég sá lögguna vera á ferðinni í miðbænum um helgar, nema þegar eitthvað rosalegt er í gangi og hennar krafist. En málið er það að aukin nærvera þeirra í miðbænum myndi stuðla að lægri tíðni ofbeldis og skemmdarverka.
Aukning á ofurölvun má tengja við fáránlegt verðlag drykkja á börum, fólk þarf að vera búið að hella sig rækilega fullt áður en það fer í bæinn vegna þess að það er ekki nokkrum manni bjóðandi að borga heilt fyllerí í miðborg Reykjavíkur. Inn í þetta stórfurðulega verðlag kemur einokun ríkisins á sölu áfengis sem kemur í veg fyrir heilbrigða samkeppni á markaðnum. Og hefur leitt til gríðarlegrar aukningar á landabruggun og neyslu hans.
Einnig mætti bæta því inn í umræðuna að mjög stór biti túrista sem hingað koma eru hér í þeim erindagjörðum að kynna sér hið margrómaða skemmtanalíf Reykjavíkur. Sú landkynning hefur án efa skilað ófáum krónunum í kassann. Án þess að taka neitt frá náttúrperlum Íslands sem eru ekki síður heimsfrægar og að mörgu leiti einstakar. En mainstream túristar sem fylgjast með heimi fræga fólksins hafa hlustað á menn eins og Quentin Tarantino, Eli Roth, Kiefer Sutherland og fleiri lofa skemmtanamenninguna okkar, kvenfólkið okkar og bjórinn.
Auk þess að til eru ýmis úrræði tli að stöðva hljóðmengun, þar má nefna tvöfalt gler sem dempar utanaðkomandi hljóð að miklu leiti. Staðreyndin er sú að flest húsin í bænum sem búið er í eru byggð úr þykkri steypu og steypa er ekki þekkt sem hljóðbært efni, þá eru þessir gluggar held ég alveg prýðishugmynd fyrir þá sem ekki vilja færa sig um set..
Held að fólk ætti frekar að hugsa í lausnum en vandmálum, ekki vera að fara fram á það sem er ómögulegt að framkvæmd. Og að umturna útliti og menningu miðborgarinnar vegna nokkurra smásála væri bara ekki réttlátt gagnvart heildinni.
|
Óbærilegur hávaði um nætur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Smásálir og nöldurpúkar
6.5.2010 | 11:04
Það er ekki íbúðabyggð á Austurstræti, Austurvelli né Tryggvagötu þar sem mesta músíkinn er.. Á Laugarveginum er skemmtistaðir en þeir eru allir á neðri helmingi hans og engin geigvænleg íbúðabyggð er þar. Ég hef verið í húsi sem var í þarnæstu götu fyrir ofan Óliver (á laugarveginum) og ég heyrði varla neitt, örlítinn óm sem hægt var að lækka í með því að halla glugganum.. Þetta gamla lið sem er að kvarta ætti bara að líta til þess tíma sem það var ungt og vildi skemmta sér og bölsótaðist þá eflaust út í röfl gamla fólksins sem ekki vissi hvað hljómflutningstæki var.
Þetta fyrirkomulag er einfaldlega það sem gengur og gerist í borgum, langt því frá að vera einhver einstök og óeðlileg þróun. "Langt út fyrir eðlileg mörk skemmtanalífs", kynslóð þessa talsmanns ætti nú að þekkja byltingu í skemmtanalífi með tilkomu rokksins og hærri og betri hljómburðar sem á sínum tíma gerði eldra fólkið á þeim tíma alveg brjálað. Þar sem að rokkið var "djöflatónlist" í þeirra eyrum, tónlist sem spillti hugum ungra meyja og pilta auk aukningar á neyslu áfengis í kjölfarið.
Hlutirnir þróast og taka breytingum, nýjar kynslóðir þróa með sér nýjar hefðir, tónlistarsmekk og skemmtanalíf. Auknir ofbeldisglæpir er afleiðing þess að það er niðurskurður í lögreglunni og færri löggæslumenn þ.a.l. á ferðinni í miðbænum til að hafa hemil á fólki. Þar er ekki bara áfengisneyslu um að kenna. Það er orðið virkilega langt síðan ég sá lögguna vera á ferðinni í miðbænum um helgar, nema þegar eitthvað rosalegt er í gangi og hennar krafist. En málið er það að aukin nærvera þeirra í miðbænum myndi stuðla að lægri tíðni ofbeldis og skemmdarverka.
Aukning á ofurölvun má tengja við fáránlegt verðlag drykkja á börum, fólk þarf að vera búið að hella sig rækilega fullt áður en það fer í bæinn vegna þess að það er ekki nokkrum manni bjóðandi að borga heilt fyllerí í miðborg Reykjavíkur. Inn í þetta stórfurðulega verðlag kemur einokun ríkisins á sölu áfengis sem kemur í veg fyrir heilbrigða samkeppni á markaðnum. Og hefur leitt til gríðarlegrar aukningar á landabruggun og neyslu hans.
Einnig mætti bæta því inn í umræðuna að mjög stór biti túrista sem hingað koma eru hér í þeim erindagjörðum að kynna sér hið margrómaða skemmtanalíf Reykjavíkur. Sú landkynning hefur án efa skilað ófáum krónunum í kassann. Án þess að taka neitt frá náttúrperlum Íslands sem eru ekki síður heimsfrægar og að mörgu leiti einstakar. En mainstream túristar sem fylgjast með heimi fræga fólksins hafa hlustað á menn eins og Quentin Tarantino, Eli Roth, Kiefer Sutherland og fleiri lofa skemmtanamenninguna okkar, kvenfólkið okkar og bjórinn.
Auk þess að til eru ýmis úrræði til að stöðva hljóðmengun, þar má nefna tvöfalt gler sem dempar utanaðkomandi hljóð að miklu leiti. Staðreyndin er sú að flest húsin í bænum sem búið er í eru byggð úr þykkri steypu og steypa er ekki þekkt sem hljóðbært efni, þá eru þessir gluggar held ég alveg prýðishugmynd fyrir þá sem ekki vilja færa sig um set..
Held að fólk ætti frekar að hugsa í lausnum en vandmálum, ekki vera að fara fram á það sem er ómögulegt að framkvæmd. Og að umturna útliti og menningu miðborgarinnar vegna nokkurra smásála væri bara ekki réttlátt gagnvart heildinni.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samir við sig blessaðir
8.1.2010 | 02:24
Ástæðan fyrir því að Ísraelsher hefur enn ekki stigið fram með yfirlýsingu er eflaust sú að þeir vita ekki enn hvaða lygi þeir eiga að koma með. Kannski eru þeir að halda upp á eins árs afmæli þeirra hrikalega atburða sem áttur sér stað á Gaza í janúar 2009 þar sem 1400 Palestínumenn létust, þar af mörg hundruð konur, börn, gamalmenni og saklaust fólk.
Það er deginum ljósara að Ísraelar vilja ekki að Gazabúar nái að byggja upp samfélag sitt aftur. Gaza er enn í sárum eftir árásir síðasta árs og með þessum aðgerðum hafa íbúar Gaza svæðisins verið teknir aftur um nokkur skref í uppbyggingarmálum. Eini ljósi punkturinn í fréttinni er sá að enginn lét lífið heldur hafi aðeins hús eyðilagst, en það þýðir þó að núna eru fleiri orðnir heimilislausir.
Ég býð enn eftir því að Obama standi undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar og gagnrýni Ísrael af fullum krafti og fari jafnvel út í einhverjar aðgerðir í stað þess að leifa Ísrael að vaða uppi og pissa yfir alþjóðalög.
Viva Palestina!
|
Loftárás á Gasasvæði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mannréttindi fótum troðin
29.6.2009 | 23:17
Article 27 of the Fourth Geneva Convention relating to the Protection of Civilians in Time of War, of 1949, stipulates that residents of occupied territory "are entitled, in all circumstances, to respect for their persons, their honor, their family rights, their religious convictions and practices, and their manners and customs."
Þýðing: 27. grein Genfarsáttmálans varðandi verndun borgara á stríðstímum frá árinu 1949 kveða á um að íbúar hertekinna svæða [t.d. Palestína] "eiga rétt á, í öllum tilvikum, virðingu á sínum trúarbrögðum, heiðri sínum, rétt fjölskyldunnar, trúarskoðunum og iðkunum sem og lifnaðarhætti sínum og venjum"
Þetta er aðeins ein af fjölmörgum alþjóðalögum sem Ísraelar virða ekki, einfaldlega vegna þess að þeim er leift að brjóta lögin á afleiðinga. Það er alger hneysa að slíkt skuli fá að viðgangast í nútíma heimi þar sem flæði upplýsinga hefur aldrei verið meira og aldrei hefur Palestína verið jafn opin og nú. Með því að segja opin á ég við að það er einstaklega auðvelt að finna upplýsingar um það sem þarna er að gerast, og það er lítið mál að sjá hvað Ísraelar eru að gera þarna. En á móti kemur að flæði rangra upplýsinga, flæði bull staðreynda og röng umfjöllum um atburði í Plestínu hefur aldrei verið meira. Í vestrænum miðlum er Palestína og Palestínumenn yfirleitt aldrei sýndir sem annað en hryðjuverkaþjóð sem vill ekkert frekar en að eyða Ísrael. Þó svo að staðreyndin sé sú að langtum flestir vilja aðeins lifa góðu lífi í frið án átaka og án missis.
Grundvallar mannréttindi eru brotin á degi hverjum í Palestínu, það sem skrifað er um í þessri frétt er ekkert nýtt af nálinni. Hömlur á lífsnauðsynjum hafa verið til staðar í langan tíma, skortur á vatni hefur verið til staðar í langan tíma [þar sem að Ísrael notar rúmlega 80% vatnsins] og fleira og fleira. Það hryggir mig að sjá hve illa er farið með fólkið þarna og ég hef persónulega upplifað hernámið í Palestínu þegar á dvaldist þar, reynsla mín jafnast þó ekkert á við þá tilveru sem Palestínumenn lifa við. Ég fékk þó nógu mikinn nasaþef til að vita um hvað ég er að tala.
Ég hlakka til að sjá hvað Obama mun gera á komandi mánuðum varðandi Ísrael og Palestínu, enn sem komið er hefur hann komið á óvart en einnig valdið mér vonbrigðum þar sem ég bjóst við meiru af honum. En það er auðvitað erfitt fyrir hvaða bandaríska stjórnmálamann sem er hvað þá forsetann að styðja Palestínumenn um of þar sem að lobbíistar Zíonista í Bandaríkjunum eru svo sterkir.
Set punktinn hér, hef meira að segja en held að fólk lesi ekkert mikið lengri blogg:)
Frjáls Palestína!
|
Ástandið sí versnandi á Gasa |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Hryðjuverkaþjóðin Bændaríkin
24.6.2009 | 02:52
Bændaríkjamenn sýna hér enn og aftur sitt rétta andlit og það á virkilega ógeðfelldan hátt. Það er ekki laust við að það sé kaldhæðnislegt hversu mikið BNA reyna að halda uppi hræðsluáróðri gegn hryðjuverkum en eru síðan sjálfir mestu hryðjuverkamennirnir. Enn þann dag í dag hafa Bændraríkin drepið mun fleiri saklausa borgara en nokkurn tíman allir hryðjuverkamenn sögunnar. Þeir veigra sér ekki við að sprengja upp syrgjandi fólk og ekki bara vopnaða menn heldur börn og konur líka.
En þetta er bara kosturinn við að hafa einn öflugasta her í heimi og fjöldann allan af vinum sem myndu hjálpa í neyð, þá getur maður gert það sem manni sýnist eins og að drepa saklaust fólk án afleyðinga. Engin þjóð talar meira um hryðjuverk en Bændaríkin þeir tala um alla þessar múslima sem eru svo klikkaðir, múslima sem drepa saklausa múslima sem virða ekki lýðræði eða mannréttindi. En hvað gera þeir? Þessi kristna Guðs útvalda þjóð sem trúa á Guð sem blessar allt sem þeir gera, eða það segja forsetarnir allir í ræðum sínum 'And may God bless America'. Þeir ráðast inn í lönd sem þeim þykja ekki vera sér samboðin, lönd sem þeim finnst ekki samsvara nægilega hinum Ameríska standart um gott land, þægt land.
Þetta gera þeir allt í nafni Guðs og því spyr ég hvort einhver grundvallar munur sé á austurlenskum hryðjuverkamönnum sem drepa í nafni Allah eða Bændaríkjamönnum sem drepa í nafni Drottins Guðs? Munurinn felst í því að Bændaríkjamenn ráða, þess vegna teljast gjarðir þeirra ekki sem hryðjuverk, morð þeirra teljast sem tilheyrandi fórnarkostnaður frelsisins og heimsfriðarins.
Ég vona þó að fólk haldi ekki að ég styðji hryðjuverk hinna aðilanna, því það geri ég ekki, en mér þykir það skítt þegar aðeins annar aðilinn er sagður vera að gera eitthvað af sér. Sjaldan veldur einn er tveir deila segir máltækið og það er hverju orði sannara. Hvort sem Guð þinn heiti Jehóva, Allah, Búdda, Kristnah eða Þór þá gefur það þér ekki leyfi til að drepa samviskulaust í nafni 'æðri tilgangs'. Þessi 'æðri tilgangur' er oft nefndur til að strá ryki í augu fólks, eins og þegar Bændaríkin fóru inn í Írak þá voru gereyðingarvopn og frelsun Íraka nefnd en allir vita að olía var ástæða innrásarinnar. Eigin hagsmunir munu alltaf ganga fyrir hjá svona þjóðum enda vilja þær halda sér í sessi sem æðsta valdið.
|
Felldu 45 syrgjendur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Óraunhæf krafa
14.6.2009 | 23:15
Netanyahu er hér að mála mynd af sér sem boðbera friðar en er í raun að setja svo óraunhæf skilyrði að það er ekki nokkur leið fyrir Palestínumenn að samþykkja þetta. Af hvelju ættu Palestínumenn að gera sig varnalausa frekar en Ísraelsmenn? Það er fáránlegt að fara fram á það að Palestínumenn leggi niður vopn þegar þeir myndu vera nágrannar einnar mestu herþjóðar heims, þjóðar sem ber undir belti tæknivæddustu og bestu vopn sem völ er á auk kjarnavopna.
Mér er einnig spurt hvaða Palestína þetta er sem hann þykist vera að samþykkja, eru það landmærin síðan 1967 eða eru það landmærin 2009? Landsvæðið sem Palestínumenn dvelja á í dag er um 11% af þeim 100% sem þeir áttu í upphafi. Netanyahu ætlar sér heldur ekki að leggja niður þær ólöglegu landnemabyggðir sem búið er að byggja undanfarin ár, sem stangast á við alþjóðalög sem banna uppbyggingu landnemabyggða á herteknu svæði. Hann setur sig heldur ekki á móti frekari uppbyggingu þessara áðurnefndra landnemabyggða.
Ef plan Netanyahus um að láta sig líta út sem einhver friðarpostula mun ganga í gegn með þessum skrípaleik þá mun ég missa allt álit á heimsbyggðinni þar sem það liggur í augum uppi að þetta er hreinn og beinn farsi. En það væri svosem ekkert nýtt ef heimsbyggðin flykkti sér á bak Ísraels þar sem það er jú miklu þægilegra að gagnrýna ekki framferði Ísraels sama hvað þeir gera.. Þeir eru nú einu sinni fórnarlömbin í þessu öllu saman
|
Netanyahu styður Palestínuríki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Orð í tíma töluð!
6.5.2009 | 21:38
Það er ekki mikið seinna vænna að Palestína hljóti langþráð og réttlátt sjálfstæði undan ógnarveldinu Ísrael sem hefur haldið þeim föngnum svo áratugum skiptir. Barátta þessara tveggja þjóða er einsdæmi í sögunni, sú kúgun sem Ísrael beitir Palestínumenn og þau mannréttindabrot sem þarna eru framin myndu aldrei fá að viðgangast annarsstaðar í heiminum í þetta langan tíma. Ég er þó ekki að gera lítið úr því sem annað fólk þ.á.m. gyðingar hafa þurft að ganga í gegnum, langt því frá, en þau fjölmörgu ódæðisverk sögunnar sem framin hafa verið hafa aldrei fengið að ganga áratugum saman líkt og í Palestínu.
Það liggur svo sannarlega í augum uppi að ef einhver þjóð án heimalands á það skilið að fá sjálfstæði undan kúgurum sínum þá eru það Palestínumenn. Blygðunarlaust aðgerðarleysi heimsins alls í garð Palestínumanna er alger skömm, já ég segi heimsins alls þar sem þetta hefur verið að gerast fyrir augum okkar allra í áraraðir. Það er þó borin von að fólk flykkist í stuðningshópa Palestínumanna þar sem að þeir eru sýndir í fjölmiðlum sem blóðþyrstir hryðjuverkamenn sem svífast einskis í baráttu sinni gegn greyið litla Ísrael.
En er Angela Merkel og fleiri sem stutt hafa tveggja ríkja hugmyndina aðeins að reyna að selja okkur glópagull? Selja okkur drauma á bleiku skýi sem lýtur svo vel út, líkt og kommúnismi er góður á blaði en ekki í raun? Það er erfitt að segja hvert stefnir en maður leyfir sér þó að vera vonglaðari í ljósi þess að Obama situr í Hvíta húsinu og heimurinn hefur einnig opnað augu sín aðeins meira, sérstaklega eftir vægðarlausar árásir Ísraela á Gaza í lok seinasta árs og byrjun þessa árs.
Er frjáls Palestína í augsýn? Það má Guð vita....
|
Aðeins ein leið fær í Palestínu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


